Íslensk náttúruverndarkort
Staðsettu þig á kortunum og kannaðu umhverfi þitt áður en landi er raskað.
10 kort í safninu.
64 vistgerðir á landi í 12 meginflokkum (vistlendi). Aðrar þekjur: Vegir og örnefni (Náttúrufræðistofnun) og skurðaþekja (Landbúnaðarháskóli Íslands).
121 alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði á Íslandi samkvæmt viðmiðum BirdLife International.
Rúmlega 130 friðlýst svæði sem njóta verndar samkvæmt náttúruverndarlögum.
Náttúruminjaskrá er skrá yfir friðlýst svæði á Íslandi og aðrar mikilvægar náttúruminjar.
Friðaðar og friðlýstar fornleifar á Íslandi.
Óraskað og lítt raskað votlendi stærra en 20.000 fermetrar á Íslandi. Sérstök vernd samkvæmt 61. gr. laga um náttúruvernd.
Fossar sem njóta sérstakrar verndar samkvæmt náttúruverndarlögum.
Yfirlit yfir kolefnisskógræktarverkefni á Íslandi og stöðu vottunar.
Hlýnunaráhrif endurskinsbreytinga við kolefnisskógrækt á Íslandi, reiknuð út frá snjóhulu veðurstöðva.
Prófunarkort fyrir staðsetningarhnappinn. Eingöngu grunnkort frá OpenStreetMap, án íslenskra þekja og án afmörkunar við Ísland.